In your honor

One more time for the last time

21.10.2007 19:33:09 / Eikin

nýtt blogg

www.eikin.bloggar.is


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 20:03:31 / Eikin

summervacation

sumarfrí... sumarfrí... ó sweet sumarfrí :P

» 5 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 18:29:52 / Eikin

Congratulations!!! You are the 10.000 visitor... click here and you will recieve a prize!!!

Hver ætlar að verða nr 10.000... Hann/hún fær ekki verðlaun en hann/hún fær STÓRT knús frá mér:D:D

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 21:19:30 / Eikin

Velkomin til Reykjavíkur - Welcome To Reykjavík

Jæja, við erum komin heim úr stórborginni... þetta var alveg megastuð. Lögðum af stað strax eftir vinnu á föstudag og fengum að gista hjá Valda brós og Ingunni á Hvammstanga þrátt fyrir að þau kæmu ekki heim fyrr en eikkern tíma um nóttina=S en það reddaðist alveg og við lögðum af stað rétt fyrir átta morguninn eftir keyrðum þennan síðasta spöl suður.

Það var bara sól og blíða í borginni og allir hressir og kátir. Vorum komin um tíu og bara straight to business. Fórum í Elko, Smáralind, Kringluna, Kolaportið, aftur í Smáralind og svo í Garðheima um kvöldið, svo inná milli fórum við niður laugarveginn og solleiðis!!! Það var nú reyndar ekki mikið verslað þann daginn en það var nóg skoðað og dundað sér... borðað góðan mat (btw, Sbarro er nýji uppáhalds staðurinn minn, æðislegur cheesy ítalskur matur. Mæli sterklega með honum, þið sem elskið ost á matinn ykkar!!!) og já, margt fleira. Svo var bara slappað af um kvöldið og horft á sjónvarpið...

Svo á sunnudaginn var nú ekki mikið hægt að gera því það var flest allt lokað þar sem það var nú Hvítasunnudagur!!! En við redduðum okkur og kíktum í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn, fyrsta skiptið mitt þangað=P Geggjað gaman!!! Eyddum dágóðum tíma þar, og svo var bara farið í Perluna og við nutum útsýnisins!!! Og næst þegar þið farið í Perluna... þá VERÐIÐI að smakka Berjasósuísinn, 3 kúlur af ís, jarðaberja, kirsuberja og bláberja, berjasósa, rjómi og fersk jarðaber og smá súkkulaði spænir yfir!!! Og OMG hvað þessi í er himneskur!!! Við Gunni vorum alveg að missa okkur yfir þessum ís, ég heyrði þegar það rifnaði gat á magann á mér en ég hélt áfram að háma í mig, hann var það góður!!! Maður var bara í þvílíka sykursjokkinu eftir á og bumbult en samt á góðan hátt... ekkert samviskubit hér sko!!!

En já, svo fórum við bara í þær búðir sem voru opnar, eða... þessa einu sem var opin! Mál og Menning í Laugarveginum!! Svo bara heim að borða læri ala’ Gugga!!! Nammi namm... Svo ætluðum við að fara í bíó á Pirates, langaði gg í lúxus salinn en það var uppselt bæði í mjóddinni og smárabíói.. svo við bara fórum og leigðum night at the museum sem var góð!!! En samt ekki eins góð og ég var búin að búa mig undir!!! To much expectation, shame on me!!!

Well mánudagsmorguninn fór það að pakka niður, ganga frá, fá sér morgunmat og segja bless!! Fórum samt svo aðeins í bt og biðum svo eftir að hagkaup í kringlunni opnaði... verslaði mér dágóðan slatta af fötum þar fyrir alls ekki mikinn pening!! Ég kem heim alveg 10 bolum/peysum ríkari!!! Ánægð með það! Fórum svo á Sbarro og fengum okkur nammigott=P mmm ostuuuur!!! Kíktum svo smá í nokkrar búðir, Body shop... (always cheers me up) konfektbúðina, og ég held ekki fleiri... svo var bara brunað af stað heim! Stoppuðum hjá Valda og Ingunni aftur í heimleiðinni og fengum okkur kaffi... þau 2 og Viktor Kári eru svo miklar dúllur=P ég alveg elska þau!!!

Erum núna svona 40-50 mín. frá Akureyri, fer svo beint í bíó með Guggu sys, Stebbu minni, Hönnu Gerði og Sibbu dúllum á stórmyndina Pirates sem ég er búin að erfiða svo mikið við að reyna að sjá um helgina... vá hvað það er erfitt að fara í bíó fyrir sunnan:S ömó...

Well, þar hafiði það... næst þegar þið farið suður þá er hérna must do listi:

-    Fara í húsdýragarðinn, múshímú...
-    Fá sér Berjasósuís í perlunni...
-    Fara á Sbarro og fá sér góða máltíð þar...
-    Kaupa sér White musk sápu eða bara eikkað með White musk ilm í Body shop...
-    Stoppa hjá skemmtilegum ættingjum og fá sér kaffisopa!!!
-    Svo bara versla í Hagkaup auddað;) hehe

Hafið það gott dúllurnar mínar, og keyrið varlega... veit það er komið sumar og gaman og spennandi að fara hratt, en þið viljið ekki fara hratt inní eilífðina!!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 20:22:05 / Eikin

Tileinkað Ingunni...

Erum við raunveruleg eða er ég bara að ýminda mér þetta allt saman? Ef þetta er allt saman... hvar er þá restin?

Ég er orðin fatafrík... alltaf að kaupa mér ný föt! Ótrúlegt hvað maður getur breyst með tímanum. Fyrir alls ekki svo löngu síðan var mér nokk sama um föt... og ég hataði bleika liti! Fyrir mér var allt svart. En núna... bleikt, appelsínugult, rautt, ljósgrænt, blátt, hvítt... ég er komin með æði fyrir þessum litum og er alltaf að kaupa mér ný föt:S mér er farið að líða eins og stelpunum í bandarísku skólamyndunum, þar sem stelpurnar skipta um föt á 10 mín fresti. Persónulega þoli ég ekki þannig. En ég ræð ekki við mig! ÉG ELSKA FÖT!

Ég og Gunni erum 1 og ½ árs í dag... hooray for us=D Þetta er bæði búið að vera ótrúlega langt og ótrúlega fljótt að líða... Og Gunni var svo dædur að gefa mér 2... takið eftir, TVÖ pör af skóm... því eitt par var ekki nóg handa mér:P gegt sætir samt, alveg eins pör nema annað rautt og hitt silfurlitað, svona ballerínuskór. Fara vel við nýju fötin mín... hehe. Ég gaf honum ekkert því hann vildi ekkert... ætlar að fá að eiga það inni hjá mér þangað til við förum næst suður (sem verður sennilega næstu helgi) og förum í búðarráp þar... guð hjálpi kreditkortinu mínu þá!!!

Ég held við séum nokkuð ákveðin í því að fara til Copenhagen í sumar... mig langar svo í tívolíið þar:D og þar get ég örugglega verslað gommu fyrir ekki svo mikin pening! Ég þarf að fara að fá mér svona fataherbergi eins og fínu og frægu konurnar í hollywood eiga:P Það væri töööff:P ojæja... ég má láta mig dreyma!

En já, klippti á mér hárið um daginn... stytti það allsvakalega, nær mér núna rétt niður fyrir axlir og það er svooo þægilegt. Var orðin frekar þreytt á lubbanum. Þótt þetta sé hálfgerður lubbi ennþá!!!

Hver hefur horft á Grey’s anatomy? Byrjaði að horfa á þessa þætti fyrir um viku síðan og get ekki hætt!! Ég get ekki hugsað um neitt annað en Grey og Dr. McDreamy... Ég er meira fyrir McDreamy heldur en McSteamy... mér finnst hann einum of mikið “Chocko”... eikker sammála???

Hvað er hinum megin við alheimin?? Ég bara spyr...

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 22:09:24 / Eikin

nú jæja...

Ég var svo hissa að sjá að elskulegi bróðir minn commentaði hérna í síðuna mína að ég ákvað að blogga aðeins fyrir hann!!! En já, mér var komið skemmtilega á óvart áðan... Gunni fór til Noregs síðasta miðvikudag... og átti að koma til ak á morgun... og ég var að DEYJA ég saknaði hans svo mikið... en svo bara áðan þegar ég kom heim úr vinnunni, þá var hringt dyrabjöllunni og ég drattaðist á fætur að gá hver þetta væri... grunaði að þetta væri hann Elvar að kíkka í heimsókn... en ég sá engan í gegnum gluggan á hurðinni... en svo þegar hurðin opnaðist, kemur þá ekki bara Gunnalingur stökkvandi fram með poka í hönd "TATAAAA"... Og VÁÁ hvað ég var ánægð að sjá hann aftur! Síðustu dagar eru búin að vera kvöl og pína en samt svoldið skemmtilegir að vera svona sjálfstæð... en já, það var bara æðislegt að fá hann heim=D=D=D er alveg í skýjunum núna! Síðustu dagar eru búnir að ganga svo vel í vinnunni og vona að þeir verði þannig áfram. Er alltaf að fá hrós fyrir kjötborðið og ég er alveg að rifna úr stolti og samstarfsfólk mitt má vera það líka, ég gæti ekki gert þetta án þeirra... sérstaklega hún mammsa!!! Alltaf gott að hafa mömmu gömlu að styðja við bakið á manni!!! En já, nú er maður byrjaður að plana sumarfríið... og minns er að spá í að skella sér út!!! en ég get ekki ákveðið mig... London, Kaupmannahöfn... eða París!!! París að augljósum ástæðum... Dööh!!! London... ég ELSKA bretland... og mig dauðlangar til London að sjá allt það sem er þar!! en samt held ég að Danmörk sé bara helvíti fínn staður til að fara í sumarfrísferðalag!!! Sem er fyndið þar sem mér hefur ekki alltaf verið vel við Danmörk:S anywhooo... hvað finnst ykkur, kæru lesendur!!!... en já, er bara að skrifa þetta beint inná stjórnborðið... þess vegna er þetta svo samfelldur texti... nennti ekki að setja þetta inná word og opna svo firefox og setja það þar inná eða neitt... þið skuluð bara komast í gegnum þetta... en já... frá Noregi!!! ég fékk náttlega gjafir... úr fríhöfninni fékk ég nammigott... gúmmi og tom's nammi, snickers og carton af extra silfruðum!!! mmm nammi namm... svo keypti gunni í H&M í Bergen, geggjað sætan kjól og keypti tvo handa mér:D einn svartan, fínan í veislur og solleiðis... og einn gulan fyrir sumarið og sólina:D:D vantar bara leggings undir þá og ég fæ það bara í Centro:D jæja... ætla að fara að narta í góðgætið mitt og kúra með gunna!! Bollubossi og fluga biðja að heilsa ykkur öllum!!! Take care now, byebye then!!! og Valdi...YOU RULE;) og viktor er mesta dúlla í heimi!!! ... og ingunn líka...

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 11:00:37 / Eikin

My life in pieces

Jæja, komin tími á eitt stykki blogg...

Það helsta í fréttum er... ÉG AFGREIDDI GARÐAR THOR CORTES Í KJÖTBORÐINU UM DAGINN!!! Og ég veit ekki með ykkur hin en ég ELSKA Garðar Thor. Hann er svoooo sætur og syngur svooo fallega og er svoooo æðislega kurteis eikkað:P Ég hélt það myndi líða yfir mig!!!

Allavegana, minns er loksins byrjaður að læra á bíl. Það gengur hálfbrussulega en ég ætla ekki að gefast upp. Þetta skal takast!!

Valdi brós, Ingunn og litli Hnoðrinn þeirra skruppu hingað norður síðustu helgi og eru búin að vera hjá mömmu síðan þá, og ég held þau verði hér í alveg viku í viðbót:D Það er allgjört æði því Viktor Kári er svo mikil rúsina að ég gæti bara étið hann!!!

Það verður gaman hjá mér næsta mánudag... eða þannig!!! Gunni er að fara til Noregs og hann flýgur suður á mánudag í næstu viku... ss ekki á morgun... og ég verð ein heima í viku:S Er með megastóran hnút í maganum fyrir þessu öllu saman! Hef ekki verið ein svona lengi síðan við byrjuðum saman... :S

Well, vinna á morgun... og mig hlakkar ekki til... því það eru sumir í vinnunni sem telja sig vera heilagir... og það fer geggjað í taugarnar á mér!!! Ég bara skil ekki hvernig sumir geta látið svona... eins og allir aðrir séu bara þrælar og þau geta bara skipað þeim fyrir og sjálf gert ekki neitt og komist upp með það? Ég held ekki sko!!! Bara helv*** kjaftæði!!!

Well, feginn er ég að geta bara verið í friði inní kjöti og þurfa ekki að hlusta á þetta bull!!!

Mushy kjaftæði ahead, be warned!!!...

Það er óþægilegt að vilja eikkern svo rosalega mikið að maður myndi gefa allt fyrir hann/hana... en það er ennþá verra ef maður veit að það er alveg gjörsamlega vonlaust og sá/sú sem maður þráir vill ekkert með mann hafa!!! En eins og alltaf... þá trúi ég því að ástin sigrar allt!!! Ég náði að sanna það fyrir 1 og ½ ári síðan, og það er búið að vera erfitt... og það er búið að vera æðislegt... bæði súrt og sætt;) Og ef ég á að segja eins og er... þá væri ég alveg til að ganga í gegnum þetta allt saman aftur... að halda í þessa litlu von... að berjast fyrir því sem maður trúir, því ég hef aldrei verið eins lifandi og þá!!! Og fyrir ykkur sem eruð að ganga í gegnum þetta núna... ekki hafa áhyggjur, því Ástin sigrar allt!!!!!!! ;)

Mushy kjaftæði over... I warned ya:P

Don’t stop dancing...

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 20:57:01 / Eikin

I'm my own worst enemy...

Ég veit ekki alveg hvað mér á að finnast um þetta allt saman...

Ég veit ekki hvað ég á að segja um neitt.

Ég er þreytt, ég er búin að ganga í gegnum of mikið vesen... og núna er ég bara búin.

Ég nenni þessu ekki lengur!

Ég er ekki ryk undir sófanum... það er ekki hægt bara að sópa mér í burtu.

Ég hef tilfinningar alveg eins og allir aðrir... aðrir virðast bara ekki taka eftir því.

Ég horfi á sjálfan mig... og ég er að hverfa... en engin tekur eftir því. Flestum er alveg sama.

Þannig hefur það alltaf verið...

... þannig mun það alltaf vera!

Takk fyrir mig


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 21:19:07 / Eikin

Blue coffee

Ég er á karó að fá mér kaffisopa með Esa frænda. Kósý stund... svo er Addi kominn, nú er stuð!!!

Makkinn hans Esa er bilaður... hann er með ACER!!!! Úff mar... what’a world. What a wonderful world.

Mér er kalt, mig vantar ullarpeysuna mína!

Og nú er kaffið mitt orðið kalt!

Það var talning um helgina, og hún gekk vel... hausinn á mér var tómur og ég hafði ekki hugmynd um hvað ég var að gera... þangað til einar skammaði mig! Þá fór ég í gang.

Útborgunardagur á morgun... úh beibe!!! Er svo að fara í plokkun á föstudag og svo klippingu og litun á laugardag... svo bara DJAMMM!! Neeeh, veit ekki... kannski bara slapen afen heima!

Esi og krúttin... sounds like a novel!

Kaffið mitt er orðið að ís. Mmmm ískaffi....

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 12:26:30 / Eikin

Ironic

Ok, svona standa málin... ég er ein heima með ömurlega ælupest sem byrjaði á laugardaginn og eyðilagði fyrir mér fríhelgina mína... og ég er bandbrjáluð yfir því!!!

Happy valentine’s day... I got shot in the ass!!!


Við ákváðum að sleppa því að halda valentínusardaginn hátíðlegan þar sem við erum bæði frekar blönk og ég var eikkað þreytt og slöpp það kvöldið!!!

En Gunni fékk ekki að sleppa við konudaginn... HAH!!! Ekki sjéns. Ég fékk að velja gjöfina sjálf og valdi mér J.Lo ilmvatnið Live Luxe. Voða sætur ilmur... now I smell like jenny from the block;)

Við vorum obbó dugleg og fórum út að hjóla á laugardag!! Ég held að það sé sökudólgurinn fyrir þessari ælupest minni, mér leið ekkert obboslega vel eftir þann hjólreiðatúr!!! En við skruppum í sunnuhlíð á geisladiska/dvd markaðinn þar og þar fann ég Michael Flatley’s Feet of flames sem er ein stórkostlegasta danssýning sem ég hef á ævinni séð!!! Ég man þegar ég sá þetta fyrst hjá systur minni fyrir allnokkru síðan, ég táraðist!!! Úff hvað ég vildi að ég væri það hæfileikarík að geta dansað svona!!!

En ég er ss. búin að færa mig hálfpartinn yfir í kjötið í vinnunni... er í kjötinu á morgnanna og dunda mér svo eikkað á gólfinu eftir hádegi!!! Þetta er búið að vera mjög dramatískt allt saman en ég held við komumst í gegn um þetta lifandi!

Ég finn sumarilminn og hann lokkar mig til sín! Ég vildi að ég ætti tímavél svo það gæti alltaf verið sumar... nema þegar það eru jól;)

Er búin að bæta við nýjum myndum á myndasíðuna mína www.eikin.myphotoalbum.com m.a frá árshátíð Hagkaupa í nóvember;) nokkrar léttgeggjaðar myndir þar!


En ég ætla að slútta þessu bloggi með nokkrum sætum myndum héðan og þaðan... engin blá mynd í þetta skiptið...
Until next time

 

Ég og Gunni á árshátíðinni

 

Grettir, Grútur og Grímur sætustu

 

 Gunnsi og Blesi

 

Ég og mamma við jólatréð á aðfangadagskvöld...

 

Og að lokum, ég og Gunni voða happy á gamlárskvöld 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.02.2007 20:36:24 / Eikin

Nothing girl



Pearl Jam - Nothingman
once divided...nothing left to subtract...
some words when spoken...can't be taken back...
walks on his own...with thoughts he can't help thinking...
future's above...but in the past he's slow and sinking...
caught a bolt 'a lightnin'...cursed the day he let it go...
nothingman... nothingman...
isn't it something?
nothingman...
she once believed...in every story he had to tell...
one day she stiffened...took the other side...
empty stares...from each corner of a shared prison cell...
one just escapes...one's left inside the well...
and he who forgets...will be destined to remember...
nothingman... nothingman...
isn't it something?
nothingman...
oh, she don't want him...
oh, she won't feed him...after he's flown away...
oh, into the sun...ah, into the sun...
burn...burn...
nothingman... nothingman...
isn't it something?
nothingman... nothingman...
coulda' been something...
nothingman...
oh...ohh...ohh...

Úff hvað þetta lag er æðislegt… hélt samt alltaf fyrst að hann væri syngja Muffinman… hehe!!! Það væri gegt dramatic.

Grettir er farin, nú erum við bara fjögur eftir! Það er svosem bara fínt, ekki eins mikið drasl útum allt og solleiðis en ég sakna þeirra samt=(

Fékk smá shopping spree yfir helgina, græddi 5 boli, 2 pör af skóm, undirföt og stutt, svart pils… og man ekki meira:S jú eina rauða perlufesti. Það var mjög ljúft, var í sæluvímu á eftir!!!

Svo fékk Gunni alveg heiftarlega tannpínu um helgina, greyið:( Það var ömurlegt að geta ekkert gert til að hjálpa!!! Ég veit það bara að héðan í frá ætla ég að tannbursta ALLTAF kvölds og morgna og drekka vel af vatni!!! Ég mæli með því, tannpína er kvöld og pína, bæði fyrir þolandann og alla í kringum!!!

Er farin að hlakka ekkert smá til sumarsins, við erum strax farin að plana hvað við ætlum að gera í sumarfríinu!!! Vonandi verður farið eikkað út, því mig dauðlangar til Englands!!!
Svo er auðvitað allt það gamla góða við sumarið, sólin, fuglarnir, 17 júní… og svo auddað Versló;)

Er kannski að fara að skipta um vinnu… en þá ekki úr hagkaup heldur bara að færa mig af gólfinu yfir í kjötið!!! Veit samt ekki hvernig þetta verður…

Veit ekki hvað meira ég hef að segja… er að hlusta á depressing lög og það gerir mig skrýtna. Væri alveg vís til að fara að skrifa eikkerja tilfinningavellu… bladíbla ég elska lífið, bladíbla babies are so cute, bladíbla sálin mín grætur…

Kannski ég fari bara og semji nokkur ljóð… hef ekki gert það heillengi!!! Wish me luck…



» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 19:10:59 / Eikin

Lola's own...

Bara ef lífið væri eins og í Melrose place, that would be sweet... það er samt skrýtið hvað fólkið er fljótt að skipta um lit þarna... eina syrpuna eru þau yndislegar sálir sem allir elska, svo þá næstu eru þá skrattin sjálfur með horn og hala, og öfugt.

Ég kann ekki að leggja saman tvo og tvo. Ég var að fatta það um daginn að það er Paul Newman, leikarinn frægi úr myndinni Cat on a Hot Tin Roof, sem er eigandi fyrirtækisins Newman’s own sem gerir poppið og sósurnar og allt hitt dótið. Ég hló dátt þegar ég fattaði það:P

Vinnan er yndi... er búin að vera ekkert smá dugleg síðustu viku og er búin að afkasta mjög miklu. Whíhí, jumping for joy:D:D

Systir mín elskulega litaði á mér hárið í gær... ekki mikil breyting, bara aðeins dekkra, flottara;)

Jamm, þetta er ekki mjög merkilegt blogg... bara smá drit frá síðustu viku.

En annars vil ég óska Bjartmari Örnusyni til hamingju með það að hafa slegið íslandsmet í 800m hlaupi drengja 19-20 ára... algjör snilld mar;) Ég er stolt af þér:D

Well, my time is up.

Farvel



» 2 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 19:49:09 / Eikin

Eye of the tiger... dum dum dum


"I've got my eye on you..."




Vika liðin... ekkert að gerast...

Grímur er farin frá okkur... komst seinna að því að hann væri stelpa! Líka Grútur. Hann Grettir minn er eini strákurinn, og ég býst við að annað hvort þeirra verði farið frá okkur á morgun líka. Kannski bæði!

Það var vibbalega kalt á þriðjudaginn!!! Fórum í sund í þelármörk á hárið mitt fraus á einni mínútu. Gunna líka... fórum líka í ljós. =P þetta er allt að koma hjá mér... bráðum verð ég orðin algjört chocko, hehe!

Hagkaupsgellurnar héldu grímuball á Capone í gær og það var mega stuð. Ég og Gunni ákváðum að koma sem Gomez og Morticia Addams. Gunni náði honum gjörsamlega allt frá jakkafötunum með vindilin til mjóa svarta skeggsins sem margir héldu að væri teiknað á=P Hitti Jóa brósa þar sem var geggjað töff í Eyrnaslappa búning! Hann var alveg 100% viss að hann hafði unnið búningakeppnina og var endalaust að kalla það upp að það vissu það allir að hann hafði unnið... en svo kom fyrir ekki=P Hann var hvorki í 1, 2 né 3 sæti. Hann var nú samt langflottastur þarna!

Hef aldrei skilið þetta með eyrnaslapa í Bangsímon. Af hverju er þunglyndur asni með halan nældan á sig í barnaefni sem þessu. Og hann er alltaf talandi um að það vilji enginn tala við hann því hann væri svo leiðinlegur og hann væri bara asni... örugglega mjög skemmtilegt fyrir börnin að horfa á! Samt elska ég eyrnaslapa:D :*

En allavega, Gugga sys var þarna líka alveg gasalega sætur lítill skratti í flottum rauðum kjól með hornin sín og meira að segja grill gaffal:P Hver getur toppað það!

En Gunni er að elda handa mér maisstöngul... mmm nammi namm! Erum búin að vera obboslega dugleg í dag, búin að þvo 2 vélar, og svo tókum við eldhúsið algjörlega í gegn og fórum í gegnum alla skápa og þrifum hvern krók og kima og hentum alveg GOMMU af drasli... líka plássið sem skapaðist við það... það er æði!!! Svo er hann líka að búa til æðislega góða nacho réttinn sinn *leinileg uppskrift* og svo verður það bara góðvinir okkar Ben og Jerry í kvöld og eikker góð mynd and relaxation time! It’s so svettt.

See ya next week.... caramia :* :* :*





» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 11:07:17 / Eikin

I'm leaving on a jet plane...




Vitiði um eikkern sem langar í kettling? Og það strax í dag? Því að við erum með þrjá litla gemlinga sem við þurfum að fara að losna við:S Þeir eru orðnir of stórir til að ennþá hjá mömmu sinni!!! Svo ef ykkur langar í eða vitið um eikkern, endilega látið mig vita. Síminn er 848-9743 Ólöf, eða 846-2239 Gunnar. Þeir eru allir rosalega sætir og kátir litlir kettlingar:D


En annars, þá er ég ein heima:( Búin að vera ein síðan á fimmtudaginn... og það er ekki búið að vera gaman. Hnosi er búin að vera að gera mig brjálaða og át allt nammið mitt úr skápnum mínum!!! En sem betur fer kemur Gunni litli heim í dag og þá verður allt miklu betra:D Ég get ekki beðið!!!!!!

En þá þarf ég líklega að fara að taka allt jólaskrautið niður og ég nenni því svoooo ekki!!! Mér finnst að fyrst að ég setti það allt upp, þá ætti hann að geta tekið það niður=P

Ég er búin að vera gegt duglega að fara í ljós... fór bæði í gær og í fyrradag. Ætli ég fari svo ekki bara aftur á morgun líka og dragi þá kallinn með!!! Það er ekkert svo gaman að fara ein:( Það er bara ekkert gaman að vera einn yfir höfuð!!! En ég býst við því að það hafi góð áhrif á mann að vera smá í burtu frá hvor öðru... sérstaklega þar sem ég þarf að hanga með honum allan daginn í vinnunni og svo allt kvöldið þegar við komum heim!!! Ég efast um að það sé mjög heilbrigt:S heh, ég er hvort eð er ekkert heilbrigð:P

En jamms, sunnudagur í dag... ekkert að gera! Þarf að þrífa... þarf að fara í sturtu... nenni engu... nenni ekki einu sinni að sofa lengur:S og þá er mikið sagt! Það er snjór úti... kannski ég fari og búi til snjókarl!!! Eða út að skokka, það hljómar vel;)

Brottfarartími...

“So kiss me and smile for me
Tell me that you'll wait for me
Hold me like you'll never let me go

'Cause I'm leaving on a jet plane
I don't know when I'll be back again
Oh, babe, I hate to go…”

 



» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 21:14:33 / Eikin

Hann á afmæli í dag... ég ætti kannski að fara aftur að vinna:P

   


Núverandi 09.01.06

Núverandi föt: Gallabuxur og grænn True bolur, rautt nærfatasett í stíl og hvítir sokkar. 
Núverandi farði: bara smá farði, maskari og augnskuggi
Núverandi skap: bara heavy ágætt
Núverandi hár: tagl, gegt sætan topp;)
Núverandi pirringur: Að þurfa að fara að vinna aftur á morgun:(
Núverandi lykt: Roses, The Body shop
Núverandi skartgripir: Grænt armband úr Accesorize, bláir eyrnalokkar sem gunni gaf mér og fermingarkrossin minn

Núverandi áhyggja: bara það sama og venjulega… að eikkað komi fyrir ástvini mína:(
Núverandi löngun: Dominos Chicken fajitas pizza
Núverandi lag: The Pot - Tool
Núverandi ósk: Að Hnosi væri alvöru strákur:/
Núverandi texti á heilanum: Irreplaceable með Beyonce
Núverandi display pic: Dave Grohl
Núverandi áætlanir fyrir kvöld: Hanga í tölvunni, spjalla á msn og kúra með kallinum.
Núverandi skemmtun: Grettir, Grímur og Grútur… litlu sætu kettlingarnir okkar
Núverandi msn manneskjur sem ég er að tala við:
Núverandi hlutir á borðinu: kertastjakar, appelsínusafi og konfektw
Núverandi uppáhalds bók: Heppin eftir Alice Sebold
Núverandi uppáhalds bíómynd: James Bond- The Casino royal og Sharpe myndirnar;)
Núverandi uppáhalds hljómsveit: ALLTAF Foo Fighters, það kemur ekkert annað til greina
Núverandi uppáhalds þáttur: Charmed, Angel, Monk og ANTM
Núverandi inneign: 351 kr
Núverandi símavinur: Símaþjónusta Kaupthings;)


Allir að hugsa til litlu dúllunnar minnar… hann er að leggja sig í inní herbergi með alveg skelfilega tannpínu! Mér líður hræðilega því ég get ekkert gert:(

Mér er líka illt í maganum. Mikið stress í vinnunni í dag, 99kr dagur og hellingur að gera!!! Ég er að hlusta á öll gömlu góðu lögin;) Ég vildi að ég gæti spólað til baka og upplifað það allt aftur þegar ég uppgötvaði þessi lög fyrst… ég elska að uppgötva eikkað æðislegt… gott lag, góða bíómynd, góða sjónvarpsþætti… eða nýja góða vini:D það er það besta af öllu!!! Ég man þegar ég uppgötvaði Nínu fyrst…það var mjög skemmtileg upplifun, og hefur verið allgjör rússíbani síðan!!! Ég var að reyna að rifja upp fyrsta augnablikin sem ég man eftir eikkerri manneskju!!! Það fyrsta sem ég man eftir gunna er þegar ég var uppi hjá skrifstofunum og ég var í foo fighters bolnum og hann stoppaði að sagði að ég væri í gg flottum bol… svo komst ég að því seinna að hann ætti nákvæmlega eins:P LOL Mér finnst oft eins og að ef það hefði ekki verið fyrir foo fighters… þá hefði ég aldrei fundið gunna:P eða kannski er ég bara rugluð í hausnum.

Ég fékk gjöf í dag frá Hagkaup, Eftirréttabók Hagkaupa!! Gomma af girnilegum kökum og eftirréttum *slef slef*. Efast samt stórlega um að mér eigi nokkurn tíma eftir að takast að gera neitt úr þessari bók… þetter allt svo flókið eikkað:S En samt geggjað að eiga þessa bók

Put your hands up for Detroit er snilld;) elska þetta lag!!! Mig langar alltaf á djammið þegar ég heyri það!!!

En vá hvað mig langar að sjá Children of men…snilldar söguþráður!!! Hlakka svo til að sjá hvernig hún endar… og líka Stranger than fiction, það sem fólki dettur í hug í dag;) það er æði!!!

En nú ætla ég að fara að hjúkra kallinum mínum, hann er svo lítill eikkað:p

Takk fyrir mig





 

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Klukkan